|
||||
Ökukvenréttindi
Mr. UFO Laaaaaatur.... Kvikmyndagetraun Smart þjófavörn "Star Wars III" trailer Latur... Constantine What is the matrix? Jólin koma... Upptekinn Óli og Dorrit Til hamingju Dawn Forster! EXPLORERS Öfga straujun II Væntanleg verðlækkun á mannslífum II Hin illi Dr. Totenkopf 30 ára Viltu vinna góða DVD-B-Mynd! Broskallar á Mars "click!" Verðlauna kvikmyndagetraun! Skondið Ekki benda á mig Pæling Lífið... Eitthvað til að glápa á Framtíðarbiti Eitt sinn verður allt að deyja II Say what??? Nýtt útlit Tennis Kvikmyndagetraun! Afsakið hlé... 3 góðar bækur Kominn tími á getraun... Hver var John Titor..? Im back... Sumarfrííííí Pirrandi ruslpóstur Án dóms og laga Alien VS Predator Tölvuleikjaást Tómur Af djöflum Fuck you very much... Skyndibiti dauðans Klassískur ævintýraleikur Þekkirðu þessa "konu"? Dr. No(t) |
8 desember 2004What is the matrix?
En spólum aðeins til baka, hver er það sem er að fara að verða billjónamæringur á kostnað WB? Og af hverju höfum við ekki heyrt neitt um þetta mál? Sophia Stewart heitir kona sem í kringum 1980 sendi inn handrit í vísindaskáldsögu keppni, sem að Wachowski bræðurnir stóðu fyrir, og sendi hún inn handrit sem hét "The Third Eye". Samkvæmt réttarskjölum, komst FBI að því að meira en 30 mínútur höfðu verið klipptar úr fyrstu Matrix myndinni til að reyna að komast hjá því að þurfa að borga henni krónu. Einnig kom fram að mörg vitni voru að því að Wachowski bræðurnir, forstjórar og lögfræðingar innan Warner Brothers vissu að handritið sem var verið að vinna eftir, við tökur á The Matrix, var stolið handrit. Þá að því hvers vegna við höfum ekkert heyrt um þetta mál í fjölmiðlum. Warner Borthers eru nefnilega dótturfélag AOL-Time Warner, en sá risi á nefnilega næstum alla fjölmiðla í bandaríkjunum. Dæmi um fjölmiðlaeign AOL-Time Warner: Hvað sem því líður þá er komin niðurstaða í þessu máli sem Sophia Stewart kærði árið 1999, og ótrúlegt en satt þá vann hún málið! Ég hlakka mest til að sjá hver talan verður sem hún fær í bætur, því að Matrix og Terminator myndirnar og allur gróðinn af þeim er vægast sagt stjarnfræðilegur. Tjáðu þig! Geiri3D skrifaði 08.12.04 21:03 | (Tracback)
25 Ummæli
Einhverstaðar heyrði ég nú líka að þær kenningar sem að hún (greinilega) kom með í handritinu hefðu verið fengnar að láni úr einhverri heimsspeki kenningu um sömu hluti... þannig að frumleikinn hefði nú ekki verið mikill í the matrix. En ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það eins og maðurinn sagði.
Gunni skrifaði 8 desember 2004, kl. 22:41 Jú þetta er nú allt voðalega heimspekilegt, en handritið hennar ku vera að mörgu leyti grunnurinn fyrir þessar myndir, ekki bara hugmyndafræðin, heldur líka umhverfi, karakterar og fleira. Væri gaman að sjá einhverntíman þetta handrit "The Third Eye", skoða það og bera það saman við þessar kvikmyndir. Ef ég finn það þá smelli ég því hérna inn í greinina.
Geiri3D skrifaði 9 desember 2004, kl. 00:00 Mjög fyndið, afþví Matrix er í raun og vera Nýja testamenntið sett upp á nútíma leik. Ég t.d. þegar ég var í 8 bekk, þá horfðum við á Matrix i fermingarfræðslu. Ef þið spáið aðeins í þessu, þá er Neo=One= The One sem jesús er og hann rís aftur uppfrá dauðum. Svo er gaurinn við tölvuna sem svíkur þau, hann er júdas. Og svo framvegis, horfiði á Matrix með þetta í huga og sjáið hvað setur !
Viktor skrifaði 9 desember 2004, kl. 12:24 þetta matrix er kannski stolin hugmynd en afhverju bætir þú við terminator, ég tók ekki eftir því í þessari grein
óli skrifaði 9 desember 2004, kl. 12:26 Las þetta um Terminator
myndirnar í þessari grein: http://www.slccglobelink.com/n
ews/2004/10/28/Entertainment/mother.Of.The.Matr
ix.Victorious-785067.shtml
Geiri3D skrifaði 9 desember 2004, kl. 12:44 Já matrix er að miklu leiti byggð á heimspekilegum vangaveltum heimspekingsins Descartes og Berkeleys. Það er einni blandað inn hugmyndum um Messías. En þrátt fyrir það að hafa fengið hugmyndir lánaðar og útfært á sinn eign máta kalla ég ekki ófrumleika, heldur tel ég að það krefjist mjög frumlegrara hugsunar að setja saman eitthvað eins og Matrix. Ég skora eindregið á fólk að kynna sér heimspeiki Descartes og Berkeleys lítilega og horfa síðan aftur á Matrix. Fólk á efitir að öðlast mikið betri og dýpri skilning á myndinni. Endilega tékkið á þessu http://www.silcom.com/~dlp/williams/de miurge.htm http://www.geo cities.com/hollywood/theater/9175/neo/matrixdes cartes.html http:// www.shark-lady.com/cg.htm
Desber skrifaði 10 desember 2004, kl. 20:38 Já og ef þetta er satt að þessi kona hafi skrifað handritin af Terminator og Matrix langar mig að sjá meira frá henni. Mér fannst Terminator ekki jafngóð og útpæld eins og Matrix en hún var góð skemmtun.
Desber skrifaði 10 desember 2004, kl. 20:40 Þetta er það sem gerist þegar
einhverjum gengur vel, og græðir pening. Þá
skjótast upp þúsundir lítilla, rotinna maðka
sem vilja fá bita af eplinu.
Bókabéus skrifaði 10 desember 2004, kl. 21:53 The Matrix , alla vega mynd
eitt er
Heimir skrifaði 10 desember 2004, kl. 22:29 Ég sá einhverntíman samanburð
á Matrix Vs Dark City
Andri Valur skrifaði 10 desember 2004, kl. 23:02 Wachowski-bræðurnir voru 15 og
17 ára þegar hún átti að hafa komið með þetta
handrit inn í þessa keppni sem þeir áttu að
hafa haldið, þeir kröfðust þess sjálfir að vera
haldið utan viðtala og sviðsljóssins, þrátt
fyrir mótmæli WB, auk þess sem fleiri vafasamar
fullyrðingar sem standast ekki grandskoðun eru
í greininni. AOL stjórnar EKKI 95% prósentum af
fjölmiðlum, Rupert Murdoch einn stjórnar
allavega 25% af fjölmiðlum í vestur-Evrópu,
Ástralíu og Bandaríkjunum, þannig að það eykur
heldur ekki trúverðugleika greinarinnar að
farið sé með ýkjur um eitthvað sem jafn auðvelt
er að hrekja...
Elli skrifaði 11 desember 2004, kl. 00:08 Jamm svo er ein pæling enn, horfið á matrix (1) og síðan Dark City, myndirnar eru sögulega rosalega líkar, og öll myndbygging og myndataka er EINS. Dark city er að vísu ekki með einhverjum svaka slagsmálaatriðum en þær eru báðar með nákvæmlega sama kvikmyndatökustílnum. Það sem vekur enn fremur undrun er að matrix var tekin upp í sama stúdíó og Dark city, og byrjuðu tökur matrix fljótlega eftir að tökum á Dark City luku, það eru meira að segja einhverjir hlutar leikmyndiar Dark City sem voru endurnýttir við gerð Matrix. Ég nenni ekki að finna einhverja þræði um þetta en að sjá myndbrot side by side úr myndunum er hreynt ótrúlegt vegna þess þau eru mörg ALVEG eins og að auki gætu þær báðar verið byggðar á einni og sömu grunnhugmyndinni.
Óskar Páll Elfarsson skrifaði 11 desember 2004, kl. 02:43 "Off topic", margar fínar myndir hjá þér á heimasíðunni þinni Óskar Páll.
Geiri3D skrifaði 11 desember 2004, kl. 03:08 og eins og allir ættu að vita þá eru Matrix myndirnar um fæðingu, líf og dauða
Hannes skrifaði 12 desember 2004, kl. 14:33 ég er farinn að skilja af hverju framhaldsmyndirar eru svona slæmar...
Ari Gunnar skrifaði 14 desember 2004, kl. 17:30 Smá athugasemd http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=446
HO skrifaði 15 desember 2004, kl. 22:25 Be sure to buy Cialis online! We have the solution against ED. Try our Cialis offer now and you'll be satisfied! Lesið meira hér.
Cialis,
11 mars 2005, kl. 23:12 Be sure to buy Cialis online! We have the solution against ED. Try our Cialis offer now and you'll be satisfied! Lesið meira hér.
Cialis,
11 mars 2005, kl. 23:31
Bæta við ummælum (URL autolinkuð, ekkert HTML)
© Geiri3d |
|
||