Geiri3d: Væntanleg verðlækkun á mannslífum II
 
 
Nýleg skrif

8 nóvember 2004

Væntanleg verðlækkun á mannslífum II

USASTARWARS.jpg

Jæja ég er búinn að vera að vinna mikið og ekki haft orku til að skrifa undanfarið, en í dag ætla ég að bæta úr því.

Ég rakst á grein á The Guardian í dag, þar sem verið er að tala um að eitt af næstu skrefum bandaríkjamanna í stríðsmálum, að hervæða geiminn. Setja á braut um jörðu mörg gerfitungl hlaðin einhverskonar vopnum. Einmitt, jörðin er greinilega ekki nógu stór fyrir þessa menn. Og það er líklegt að Bretar dragist inn í þetta með þeim, ótrúlegt.

Merkilegt nokk þá sáu menn þetta fyrir sér fyrir mörgum árum. 10 október 1967 var undirritaður samningur um það að geimurinn ætti að vera vopnalaus og friðsæll staður, engin vopn.

Brot úr lýsingu af samningnum:
"it contains an undertaking not to place in orbit around the Earth, install on the moon or any other celestial body, or otherwise station in outer space, nuclear or any other weapons of mass destruction"


Frábær framsýni hjá þeim þarna 1967.

En ég er nokkuð viss um að þjóð með "leiðtoga" eins og Bush lætur nú ekki svona smáhluti eins og þennan samning trufla sig, þjóð sem virðir ekki Genfarsáttmálann nema það henti henni, þjóð leidd af manni sem telur sig heyra rödd guðs og getur varla komið upp orði af viti án hjálpar.


Fyrir rúmu ári síðan skrifaði ég grein um væntanlega verðlækkun á mannslífum, og benti þar á möguleikann á því að bandaríkjamenn myndu þróa leysigeislavopn sem hægt væri að nota í "stríðum" þeirra. Vonum bara að þeir setji ekki þessi vopn á braut um jörðu því að þá verður virkilega ódýrt fyrir þá að drepa okkur hin.

Tjáðu þig!
Down pila.JPG



Geiri3D skrifaði 08.11.04 20:01 | (Tracback)
9 Ummæli

hmm, heimskuleg hugmynd...
góð grein.
gott að heyra í þér.

svavar skrifaði 8 nóvember 2004, kl. 23:20

Pfff.... held að það sé spurning um að versla inn blásýruhylkið til að fá sér með cheeriosinu daginn sem allt fer endanlega til fjandans!

LittleMissy skrifaði 9 nóvember 2004, kl. 09:22

Hafðu engar áhyggjur, kaninn ætlar ekki að drepa þig.
Tvær ástæður:
1. Þú ert hvítur.
2. Það er engin olía á Íslandi.

Ég hef smá áhyggjur af Noregi...

Ingvar Valgeirs skrifaði 9 nóvember 2004, kl. 10:28

þeir brjóta ekki samninginn sem þeir skrifuðu undir vegna þess að þeir munu ekki setja WMD eða kjarnorkuvopn um á sporbaug um jörðu. Þeir nota í staðinn litlar(en samt nokkuð öflugar) eldflaugar. Er samt ekki hrifinn af þessu, en rétt skal vera rétt

húgabúga skrifaði 14 nóvember 2004, kl. 20:14

Meira tengt þessu : http://w ww.cnn.com/2004/TECH/space/11/15/arms.missile.l aser.dc.reut/index.html

Geiri3D skrifaði 17 nóvember 2004, kl. 13:08


Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another.

Lesið meira hér.

Personal Injury Lawyer, 3 febrúar 2005, kl. 13:08


Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another.

Lesið meira hér.

Personal Injury Lawyer, 5 febrúar 2005, kl. 06:09


online poker WaSS0nl1neP0kr

Lesið meira hér.

free poker, 5 júní 2006, kl. 16:03

Bæta við ummælum (URL autolinkuð, ekkert HTML)









Muna eftir mér?