|
||||
Ökukvenréttindi
Mr. UFO Laaaaaatur.... Kvikmyndagetraun Smart þjófavörn "Star Wars III" trailer Latur... Constantine What is the matrix? Jólin koma... Upptekinn Óli og Dorrit Til hamingju Dawn Forster! EXPLORERS Öfga straujun II Væntanleg verðlækkun á mannslífum II Hin illi Dr. Totenkopf 30 ára Viltu vinna góða DVD-B-Mynd! Broskallar á Mars "click!" Verðlauna kvikmyndagetraun! Skondið Ekki benda á mig Pæling Lífið... Eitthvað til að glápa á Framtíðarbiti Eitt sinn verður allt að deyja II Say what??? Nýtt útlit Tennis Kvikmyndagetraun! Afsakið hlé... 3 góðar bækur Kominn tími á getraun... Hver var John Titor..? Im back... Sumarfrííííí Pirrandi ruslpóstur Án dóms og laga Alien VS Predator Tölvuleikjaást Tómur Af djöflum Fuck you very much... Skyndibiti dauðans Klassískur ævintýraleikur Þekkirðu þessa "konu"? Dr. No(t) |
7 apríl 2004NYLONÞað hlaut að koma að því, nú er búið að setja saman Íslenskt stúlknaband sem heitir NYLON. Þetta er hugafóstur Einars Bárða sem hélt fyrir nokkru opnar prufur til að finna framtíðar poppdívur Íslands. Þær útvöldu heita Alma, Emilía, Klara og Steinunn. Fyrsta lagið sem þær gefa út er cover af gamla Unun smellnum "Lög unga fólksins". Svo eru væntanleg fleiri lög, sum frumsamin og seinna í sumar kemur plata. Smelltu á myndina til að sjá myndbandið. Tjáðu þig! Geiri3D skrifaði 07.04.04 09:18 | (Tracback)
181 Ummæli
þetta er alveg ógeðslegt, er
þetta ekki grín??
Bjöddþór skrifaði 7 apríl 2004, kl. 10:05 hvað meiniði, mér finnst þær flottar og lagið er alveg ágætt!
gunnar skrifaði 7 apríl 2004, kl. 10:09 Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Nei Þetta er ekki það sem íslenskt tónlistarlíf þarfnast. Einar Bárðar ætti að skammast sín þó svo stelpurnar séu huggulegar.
Paunkholm skrifaði 7 apríl 2004, kl. 10:10 Er þetta ekki einum of mikið
af hinu góða !!!! ég bara spyr.
Tónlistarunnandi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 10:25 Þetta er örugglega eitt af því sorglegasta sem hefur gerst í íslenskri tónlistarsögu!
Rauðkan skrifaði 7 apríl 2004, kl. 10:57 Ja hérna !!!... það er nú bara ein sem virðist geta sungið í þessu bandi (þessi dökkhærða),en annars er þetta nú frekar dapurt!!
Haukur skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:02 hahahaha. í alvörunni, þetta
er nú bara fyndið.
ingunn skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:07 hvað er málið með lokin á
myndbandinu... fljúga allar á hausinn.... ekki
alveg í takt við þetta skonsumyndband
Sæþór skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:30 Hverjum er ekki sama hvernig þessar elskur syngja... þær eru svo sætar !!! er það ekki það sem selur í dag :o)
Kjartan skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:31 Hvað er eiginlega að gerast? Á þetta að vera eitthvað djók? Þetta sýnir bara hvað er að gerast í tónlistinni í dag hérna á Íslandi (og í heiminum), fallega fólkið kemst áfram í staðin fyrir það hæfileikaríka!
Óskar skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:42 Eins og að það hafi ekki verið vitað fyrirfram að það yrði valið í þetta band eftir útliti. Annars var þetta allt í lagi stelpurnar ekkert með hræðilegar raddir og mjög myndalegar sem að selur það versta við þetta fannst mér hvað lagið var lélegt
Reynir skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:44 þessi í rauða leddaranum syngur nú alveg hræðilega. mætti alveg kötta hana út strax.
ingunn skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:46 Úppppps! Æ-æ-æ! Lagið og myndbandið er svo sem ókei ...en
það hefði mátt vera meiri breidd í
stúlknavali! Einar(klaufa)Bárður ætti nú að snúa sér að því að fara í megrun - frekar en að leggja þetta á íslenska mörbúa. En þetta er jú bara mín skoðun. Kv,
ingi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 11:49 mér finnst þetta geggjað, stelpur ekki hlusta á þessi ummæli hér að ofan fyrir þessum óþroskuðu einstaklingum. þeir eru bara afbrýðissamir. Svo stelpur ROCK ON!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Sindri G skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:02 Mér finnst þetta bara mjög fínt að breyta svona aðeins til að eins mistök....það er engin Rakel þarna hún heitir Klara, þeir sem eru með aðgang að þessari síðu ættu að skammast sín fyrir að setja vitlaust nafn og breyta því undir eins!!!! :)
Bryndís skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:08 Sætar stelpur og unun lagið er gott en productionið á þessari útgáfu er vægast sagt alveg ömurlegt. Steikt myndband þar að auki. Ég sem hélt að þetta væri einhvað rosa project sem að átti að sigra heiminn... Nýju Spice Girls!
Eyjo skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:12 Er fólk ekki að grínast!!! Eina sem er nú hægt að setja út á stelpurnar... "Hvað í andskotanum eru þið búnar að láta plata ykkur út í!" Einar Bárðar búinn að taka efnilegt ungt fólk og skemma það alvarlega >:@
Bandiato skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:15 Rétt hjá þér Bryndís, ég er búinn að laga nafnið og Klara er það víst :) Ég er svo alveg sammála þér hvað varðar þá sem eru að birta undir vitlausu nafni, málið er bara að fæstir þora að birta undir eigin nafni. Kannski breyti ég kerfinu hjá mér í framtíðinni svo að ekki sé hægt að skrifa undir fölsku nafni, verð þá með einhverskonar skráningarkerfi...
Geiri3D skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:17 Ég er ekki að fatta hvernig það er hægt að gera svona leiðinlegt myndband , ok stelpurnar eru allar geggjaðslega miklar pæjur greinilega!!! Þær syngja allar vel , en þær geta gert miklu betur en þetta , myndbandið var svo leiðinlegt að ég á ekki orð yfir hversu leiðinlegt það var en ég trúi að þær gætu alveg orðið nokkuð góðar ef þær velja rétt lög og vera smá frumlegar í sambandi við myndbönd!
Birgitta skrifaði 7 apríl 2004, kl. 12:44 Er Einar Bárðar ekki búinn að
niðurlægja land og þjóð nóg??!!?? Brottkasst á
mannin!!!!!!
Gylfi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:10 Sætar stelpur! Ég ætla ekki að dæma þetta band út frá þessu lagi... sjáum hvað kemur næst
Eikker skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:18 Mjög sætar stelpur og bara ágætlega sungið hjá þeim... hins vegar kannski ekkert voðalega spennandi lag! Myndbandið líka pínu einhæft... en annars bara fínt hjá þeim ;)
Anna Lind skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:21 JESÚS! Sóun á svona sætum stelpum... Þær ættu örugglega að geta gert miklu betur en þetta! Lagið var hryllingur og myndbandið sömuleiðis! Fannst stelpurnar nú ekki neitt spes söngkonur heldur. Ojjjjj!
Elísa skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:23 lélegasta lag sem ég hef á æfi minni heyrt, og hvað er með augun á þessari ljóshærðu? O.O
Anna skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:23 mér finnst þetta bara vera
hörmung, þessi texti er líka það ömurlegasta
sem ég hef heirt.
Gísli skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:38 Er einganveginn á móti þessu
það getur vel verið að þetta eigi eftir að
falla vel í landann... Þó að ég eigi ekki eftir
að kaupa mér diskinn.
I am Sam skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:39 sammála því að það er kannski
ekki hægt að dæma þær á þessu líka hund
leiðinlega lagi (söngurinn var ok)
andri valur skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:40 Mér finnst þetta brilliant hugmynd að koma með stelpuband en mér finnst gallarnir liggja á nokkrum stöðum. 1. Velja gamalt popplag, textin er orðin
gamall og þetta lítur kjánalega út. Annars er þetta nú bara mín skoðun og finnst skoðanir margra hér að hofan vera til skammar og virðast einhverjir unglingabólu rokkarar vera tapa sér hérna í vera anti-popparar.
Steinar Ólafsson skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:41 Þetta aprílgabb er nú aðeins
of seint á ferðinni!
steinnstefáns skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:53 Guð minn góður!! Eitt það sorglegasta sem íslenski tónlistamarkaðurinn hefur látið frá sér!!! Og þegar þær fljúga á hausinn í endanum þýðir nú bara að þetta band sé flogið á hausinn eftir 1. myndband!!! En það myndi ná vinsældum ef þær myndu alltaf koma fram naktar... Því það eina sem er merkilegt við þær er útlitið því þær geta EKKI sungið almennilega!!! Þetta var sóun á pening sem beur væri varið til þeirra sem þarfnast hans. Skamm Einar B, þú skuldar fátæklingum landsin pening!!!! Og þetta er hreynt út sagt hljóðmengun!!!
Tóta skrifaði 7 apríl 2004, kl. 13:54 ég sver það .að hlusta á sum
commentin hérna. endalaust væl. bara flotta
fólkið fær að fara á sviðsljósið en ekk
hæfileikaríka fólkið. væl væl væl!!! um að gera að koma með eitthvað nýtt á íslenskan tónlistarmarkað, þótt að stelpuband sé kannski ekki neitt nýtt fyrirbæri í Evrópu. auk þess eru hljóðgæðin í gegnum netið hér alls ekki nógu gott. ég hins vegar segi ekki neitt um raddirnar þeirra fyrr en ég hef heyrt þær syngja á sviði live því allt er hægt að breyta í stúdíói. reynum svo að vera solldið opin! það má ekki prufa neitt í dag og þá fara einhverja sálir að kvarta og fá alla upp á móti sér. fínt framtak, gefum þessu séns.
kfc maðurinn skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:01 haha þetta er bara koool :D soldið súrt lag er samt svalt bara sko
biXie skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:11 !!! Hvað er með creapy ógeðslega opnu augun á ljóshærðu gellunni !!! Það er líka bara enginn almennileg vinna lögð í þetta myndband. Þýðir ekki bara að henda svona tæplega sætum stelpum saman og svo bara enginn hugmynd. Eins og allt hafið verið bara ákveðið á staðnum, það á sérstaklega við um endinn sem hefur örrulgega hljómað sem rosalegt flipp þegar það var tekið upp... Á heildina litið hefði mátt stytta þetta niður í 30 sek og þá hefði þetta sloppið sem coke auglýsing....
motherfucking skizo skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:19 vukcka thacka vukcka thacka „Þó þeir séu þrítugir þá erum við alveg bálskotnar í þeim“ Hvað ertu að meina!!!, er búið að semja nýjan lágpunkt ísl-menningar! Er sjálfgefið að Einar Bárðarson skuli koma þar að?? Einar er Árni Johnsen íslenskrar tónlistar!! Hvað er líka málið með þessa kókauglýsingu, er þetta metnaðurinn,,,,, „strákar svo hringjum við bara í vífilfell og fáum þá til að sponsora þetta“ +++ Að veita unglingum/börnum áfengi varðar við landslög, ekki bara lög unga fólksins. ---- En lets face it þetta verður örugglega slatta vinsælt, þessar stelpur verða líklega "kók-mettaðar" með annan fótinn ofan í Maarud kartöfluflögupoka í allt sumar, gefandi eiginhandar áritannir í Smáralind, með Einar (hinn skítglottandi dólgmann í bakgrunni) nema hvað,, hemjum biturleikan og kaupum plötuna.....
a bitter man skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:29 ÁI! Þetta er vægast sagt
hræðilegt! Þvílík misþyrming á þessu lagi! Ég fíla Leoncie miklu betur en þetta!
Júlíana skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:29 ég veit ekki hvað fólk er að bulla þetta er bara í lagi ef það er verið að miða við íslenskar hljómsveitir.. ég meina er í svörtum fötum, Gitta eða eitthvað af þessu hallæris pakki e-d betra en þessar gellur. ég held ekki!!
graði hönnuðurinn skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:44 Mikið rosalega eruði
leiðinlegir við stelpurnar!!!
Benedikt Þorgeirsson skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:47 ég er ekki að trúa þessu :/ nú
er ég ekki í poppbransanum og fylgist lítið með
honum enda finnst mér hann horbjóður og ekkert
nema sellout! en já back to nylon!
Valdi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:52 Ég verð nú bara að segja þetta er alveg hræðilegt.. lagið, söngurinn, textinn og myndbandið. Þetta er bara ein stór LÉLEG coca cola auglýsing. Ég hálf vorkenni þessum stelpum fyrir að vera notaðar í þennan viðbjóð.
Anna skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:53 Þetta var magnað! Hlakka til að sjá ykkur á sviði!
Vimmi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 14:53 Hvað ætlar Einar (klaufa)Bárða að ganga langt til að græða pening. Þetta snýst allt um það hjá honum og svo felur hann sig á bak við það að hann sé að búa til íslenska tónlist og efla hana. Gott mál með það en því miður þetta er ekki hægt að kalla tónlist heldur eitt allsherjar klúður. Einar ætti að snúa sér að einhverju öðru en tónlist, hann er alveg útbrunninn og uppiskroppa með gott efni :/
HG skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:05 Jesús góður!! Hvað er sorglegra en made up hljómsveit. Gefið mér Unun hvenær sem er í staðin fyrir þetta. En maður á ekki að argnúast út í stelpurnar, þetta er Einar Bárða frá a til ö.
Kristín skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:05 Mér finnst þetta bara mjög fínt hjá þeim, ég þekki þessar stelpur og þær syngja þvílikt vel :) þetta lítur samt ekki vel að hafa þær svona ofurmeikaðar og þvílíkar pósur og föt. Af hverju bara ekki að hafa þær eins og þær eru, þetta eru fallegar stelpur svo það þarf ekkert svona drasl á þeim. Ég hlakka til að heyra þeirra næsta lag og framkomu þeirra ;)
Anna Claessen skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:18 HAHAHA þetta er hörmung! -
lélegasti texti sem ég hef nokkurn tíman heyrt
og ef ég sé eina þessara stelpna útá götu á ég
pottþétt eftir að deyja úr hlátri!
Jón skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:18 Þetta er alveg vont... en það má nota stúlkurnar í e-ð annað... Rocco
Rocco skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:26 Sko ég fór á Litlu Hryllingsbúðina og aðalleikonan þar hún Alma syngur alveg gegt vel! Hún er þessi ljóshærða með síðara hárið og svona stór og flott augu!!!!! Þetta er alveg gegt gott hjá þeim! Hún Alma er skemmtileg og góð stelpa bróðir minn þekkir hana og segir það!!! Svo ROCK ON!
Magga skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:26 vá nú er einar kominn í dópið ég mundi vera að fýla þetta ef að kellingarnar væru allsberar þá myndi ég kannski hlusta á þetta
Emil skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:44 Okí augun eru soldið mikið opin miðað við hinar og einar er eitthvað út að aka stelpurnar eru allveg næs og allt það en að láta greyin syngja svona gegt einhæft lag og allar að syngja í einu. frekar að færa etta yfir í sugsbabes stíl eða eitthvað
Mumuuu skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:48 fólk sem er að setja úta textann er náttulega að misskilja aðeins! Þetta er gamalt lag frá Unun og var að virka vel hjá þeim. Þá var þetta fyndið en nú er búið að setja þetta í einhvern sell-out búning og þá er þetta alls ekki að virka! Ekki vera skíta svona á ykkur fávísa pakk...
motherfucking skizo skrifaði 7 apríl 2004, kl. 15:59 Þetta er eins og með spicegirls... lookið er gott en þar var það aðeins ljótastelpan sem gat sungið (Mel C)
Helgi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 16:02 Ég hef sjálf verið opinbert andlit og veit hve illa það getur farið með fólk að heyra baktal, það er ekkert nema öfundin uppmáluð, ef fólk fílar þetta ekki þarf það hvorki að horfa né hlusta á þetta, þetta er ágætt lag með sætum stelpum og þeir sem eru að bera illt orð á þær ættu bara að skammast sín og líta í eigin barm, ég bíð spennt eftir næsta myndbandi. Beta.
Beta vicsec skrifaði 7 apríl 2004, kl. 16:43 Hvaða hvaða.. getnaðarlegar gellur sem geta sungið.. það verður ekki betra!
Rúnar skrifaði 7 apríl 2004, kl. 16:44 Já þetta ekki að vera grín eða ???? þetta er fuckin spice girls band eikkað LOL fkn helv lélegt sko
Valgeir skrifaði 7 apríl 2004, kl. 16:47 Tetta eru nu bara Geggjadar gellur marr... ekked smákynæsandi myndband .. tær mættu nu sammt vera lettari klæddar.. :S en sammt ágæt byrjunn kallinn minn.. ;D
Helgi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:01 Úff... Voðalega finnst mér þessi production á laginu vera slöpp... en kannski er ekkert að marka Quicktime hljómgæðin. Ætla að bíða eftir að heyra þetta á mp3 eða í útvarpi. Annars fannst mér svoldið merkilegt að sjá svona augljós product placement í íslensku tónlistarmyndbandi: Kók og iPod mini, og e.t.v. fleiri sem ég tók ekki eftir.
Már Örlygsson skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:02 Gleimdi einu .. mer finnst tetta myndband allger hormung... tad mætti nu setja sma meiri pening i tetta myndband..ta myndi tad orugglega koma mikid betur ut :)
Helgii skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:08 Klara ósk mun sigra heiminn enda getur hún sungið eins og engill og er líka ein af fallegri stelpum á íslandi, samt sem áður mun þessi hljómsveit samt ekki ná rassgat
Bergsteinn skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:42 Þetta er bara alveg eins og við átti að búast. Samansett stelpnasveit á íslandi gera bara ekki betur en þetta. Ég hef ekkert álit á þessu. Svona rættist þetta bara.
Tinna skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:42 Viðbjóður, viðbjóður, ok þetta
er afsakanleg með myndbandið þetta er bara
nánast nákvæmlega eins og gamla. En komon
söngurinn og valið á stelpunum, ertu ekki að
grýnast, þetta er eins og einhverjar smápíkur
singjandi blind fullar út í sjoppu . Algjörlega
viðbjóðslegt.
Jóhanna skrifaði 7 apríl 2004, kl. 17:56 Það er svo mikið að gerast í dag að ég veit varla hvar ég á að byrja. Fyrst má kannski nefna fyrsta stúlknaband alþýðulýðveldisins Íslands, Nylon. Myndbandið þeirra má finna hjá honum Geira3d. Einhver gagnrýni hefur komið fram um að... Lesið meira hér.
Берите это!,
7 apríl 2004, kl. 18:02 Hmm.. Einstakt hvað þeim tókst að gera ófrumlega laglínu/r þarna... Þetta er ekkert sem maður hefur ekki heyrt áður. en annars er þetta einsog með alla aðra framleidda tónlist.. getur bara ekki orðið góð, svo einfalt er það.
Ingi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 18:11 vá, ég stórefa að þessar gellur muni ná langt .. !! þetta er e-ð sem mér finnst mjög asnalegt .. !! :/ sorry girls ..
birna .. skrifaði 7 apríl 2004, kl. 18:56 Nei! þetta er nú meira ruglið! þetta er ekki alveg að virka, lélegt ripp off og æjiégveitþaðekki.
Kiddi Kebab skrifaði 7 apríl 2004, kl. 19:18 Mér finnst nú óþarfi að rakka lagið niður, þetta er fínt lag þegar Heiða í Unun syngur það. Það er líka óþarfi að tala illa um stelpurnar, þær vilja, eins og allir aðrir, verða frægar. Ég ber hins vegar mun minni virðingu fyrir tilbúnum hljómsveitum sem fá allt upp í hendurnar erfiðislaust, en fyrir krökkum sem hafa lengi verið vinir og hafa æft saman í bílskúrnum lengi, samið sína eigin tónlist og komist áfram algjörlega sjálf. Þetta er náttúrulega Einar Bárða. Það er hins vegar enginn vafi á því að þær verða vinsælar, það er nógu mikið af ungum stúlkum á Íslandi til þess. Einar Bárða má eiga það að hann kann að búa til peninga, en mér finnst að hann verði að draga mörkin einhverstaðar.
Kristín skrifaði 7 apríl 2004, kl. 19:30 Mér líður eins og einhver hafi verið að skíta í bæði eyrun og augun á mér. úff
Dude skrifaði 7 apríl 2004, kl. 19:40 Er ekki aðeins hægt að hemja öfundssýkina...? Hvað með að gefa þeim smá séns...það er bara eitt lag komið út. Þó að þetta sé ekki alveg það sem maður á eftir að hlusta á er allt í lagi bara að leyfa þeim að gera það sem þær vilja án þess að vera með eitthvað skítkast og rakka þær niður! Svo eru þær líka mjög sætar. Ég segi slökum aðeins á og reynum að samgleðjast, þetta er þeirra draumur og það er frábært að hann fái að rætast hjá þeim...
Rut skrifaði 7 apríl 2004, kl. 19:41 Hva þetta er nú allt í lagi! Sætar stelpur og syngja eflaust vel... rangt lag og byrjunin er hörmuleg, geðveikt væld eitthvað... :/
Kristín skrifaði 7 apríl 2004, kl. 20:18 Haha! Aprílgabb eins á ferð
eða eikkað ? Stelpurnar flottar en tónlistin
HÖRMULEG.
Homer Simpson skrifaði 7 apríl 2004, kl. 21:13 þetter viðbjóðslegt lag ef ég
á að segja eins og er.
aðdáandi skrifaði 7 apríl 2004, kl. 21:26 --- *tár
bjarki beibí skrifaði 7 apríl 2004, kl. 21:56 vúps! Alma, ljóshærða gellan þarna, hún er að leika í litlu hryllingsbúðinni í FG, hún getur alveg sungið þar ... hvað gerðist? Sóun á hæfileikunum hennar ! ARGH mig sundlar
Elísa skrifaði 7 apríl 2004, kl. 22:33 jammjammjammjamm þetta eru alveg vel ísetjanlegar skonsur
segi ég nú bara fyrir mitt álit, en common
sponsuðu kók og hrói höttur þetta vídjó?
jájájá skrifaði 7 apríl 2004, kl. 22:50 Sexy kunntur. Sæmileg hugmynd. Léleg framkvæmd. 2* fyrir sexy gellurnar
Playerarnir skrifaði 7 apríl 2004, kl. 23:55 Þetta er hreinn og beinn viðbjóður...ég meina þvílíkt væl!! Búhú cry me a river...það er nú alveg hægt að gera mun betur en þetta!! :þ
G. skrifaði 8 apríl 2004, kl. 00:29 ...ég veit ekki hvað skal segja! Þessar stelpur eru án efa mjög skemmtilegar stelpur! Ég hef heyrt þær allar syngja og hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum eeeennn... ekki að fíla etta! þetta nær kanski að heilla 8-10 ára stelpurnar en ekki meira en það:( sorry stelpur getið betur;)
bómull skrifaði 8 apríl 2004, kl. 00:43 Róleg í öfundsýkinni...Þetta er frábær byrjum hjá þeim, stelpurnar standa sig mjög vel og geta allar sungið, útlitið er bara plús. Lagið er miklu skemmtilegra í þessum búningi og þessar stelpur eiga eftir að ná langt...annað en sumir :)
Sól skrifaði 8 apríl 2004, kl. 00:56 ég gef þessu mánuð!!!
WHAT skrifaði 8 apríl 2004, kl. 00:59 Fyrst vill ég óska stelpunum til hamingju með hljómsveitina sína Nylon og óska ég þeim velferðar í framtíðinni. RÓLEGAR STELPUR Í ÖFUNDSÝKI!!! Eins og glöggir lesendur hér hafa væntanlega tekið eftir þá er nær hver einasta stelpa hér sem kvartar og kveinar.
1. Myndbandið var ekki nógu gott ( höfðaði allavega ekki til mín). Frekar ódýrt í vinnslu og eins og margir eru búnir að taka hér fram þá mætti alveg aðeins draga úr þessum áberandi auglýsingum "coke". 2. Sætar stelpur. Eiga eftir að trylla unglingsstráka sem eru á greddunni. + litlar stelpur eiga vætanlega eftir að vilja líkjast þessum stelpum og verður þessi hljómsveit án efa vinsæl hjá yngri kyndlóðinni. 3. Ég veit að Steinunn, Klara og Alma geta sungið. Veit ekki með Emilíu (hef aldrei heyrt hana syngja)en eflaust þá er hún mjög góð söngkona. En annars held ég að þær eiga bara eftir að gera þetta gott. Persónulega þá held ég að ég myndi ekki kaupa plötu með þeim, en leyfum þeim sem vilja hlusta á þær gera það, en það er alveg óþarfi að rakka þessar stelpur niður. Kveðja Jossi bossi...
Jossi skrifaði 8 apríl 2004, kl. 03:36 Þetta er massa flott, því miður eru bara alltof margir/margar öfundsjúkar/ir .... flott hjá ykkur stelpur, meira svona!
bubbi skrifaði 8 apríl 2004, kl. 04:38 Emilía er líka frábær
söngkona, ég sá hana í Lifi rokkið (FB) þar sem
hún söng live og þar stóð hún sig mjög vel.
Þetta eru allt mjög frambærilegar stelpur og á
eflaust eftir að ganga vel. Þó að þær hafi
útlitið með sér þýðir það ekki að þær hafi ekki
hæfileika. Ég held að fólk sé að tapa sér í
öfundsýki hérna, sérstaklega stelpurnar. kveðja,
Kata skrifaði 8 apríl 2004, kl. 07:02 Þarna eru á ferð mjög góðar söngkonur ... en ég held samt sem áður að þær þurfi að þroska röddina rétt áður en þær setja saman band. .. Þær eru ungar og fallegar, því má ekki neita, en er þetta ekki frekar tískusýning en poppband (spiceGirls)
Ágúst Ævar skrifaði 8 apríl 2004, kl. 07:46 Ok Stempurnar eru bráð
myndalegar og ekkert út á þær að setja en ef
það á að velja í svona girl band þá mætti vera
einhver raddbreitt á stelponum þær singja
næstum allar eins nema Alma sem mér finnst
syngja best hinar syngja allar með nefinu.
Frekar sorgleg tilraun Einar B.
Tóti skrifaði 8 apríl 2004, kl. 12:15 Sammála síðasta ræðumanni!!!
Vantar alla breitt í söngvaravalið, EN Kommon er ekki líka stelpnabönd að verða OUT?? Eina "fræga" hljómsveitin sem kemur hingað og selur ekki upp samdægurs er stelpaband!!!!!! Pælið aðeins í þessu???????
Elias skrifaði 8 apríl 2004, kl. 14:46 þetta er grín er það ekki? jú, það hlítur að vera. 1. apríl eða something? ef ekki = SORGLEGT
Hjalti skrifaði 8 apríl 2004, kl. 15:12 Fyrst vil ég óska bandinu til
hamingju með þetta framtak. Nokkrar staðreyndir sem vert er að hafa í huga; 1.Ég man ekki eftir að hafa séð þessar stelpur reyna fyrir sér í Idol nema þá kannski eina af þeim. 2.Það er ekki hægt að dæma hvort einhver sé góður söngvari á einu lagi, hvað þá þessu lagi. 3. Glöggir hlustendur heyra að í laginu
endurtaka stelpurnar sömu laglínuna til
skiptis, svo óhjákvæmilega hljóma raddirnar Ég segi, gefum þessu sjéns. Fullsnemmt að gagnrýna á þessu stigi málsins.
Þórunn skrifaði 8 apríl 2004, kl. 15:39 Ég verð nú að segja að ég er á móti öllum samansetum fyrirtækjaböndum og þetta er nú sennilega eitt af því versta sem komið hefur fram á yfirborðið í íslenskri tónlistar útgáfu, ég meina ígor var betri (þoli þá ekki heldur en samt betri)
ólafur skrifaði 8 apríl 2004, kl. 16:10 Ég verð nú að segja að ég er á móti öllum samansetum fyrirtækjaböndum og þetta er nú sennilega eitt af því versta sem komið hefur fram á yfirborðið í íslenskri tónlistar útgáfu, ég meina ígor var betri (þoli þá ekki heldur en samt betri)
ólafur skrifaði 8 apríl 2004, kl. 16:10 Vá, kunnið þið fólk ekkert
annað en að spúa út úr ykkur neikvæðisorðum?
Mér finnst þetta mjög flott hjá ungu hnátunum,
myndbandið er fínt en lagið í eldra kantinum.
Hlakka til að heyra meira. Keep up the good
work.
Morph skrifaði 8 apríl 2004, kl. 17:45 Bara að fá að skjóta þessari frétt inn í. Þeir eru víst að setja upp stráka band líka og hún á að heita Iceguys. Ég segi bara SHIT!!!!!
Tóti skrifaði 8 apríl 2004, kl. 18:05 mér finnst þetta alveg frábært framtak hjá einari bárðarsyni og alveg æðislegt að stelpurnar geti látið drauminn sinn rætast svona.. ég væri allavega mjög til í að vera í þeirra sporum... margt sem fylgir þessu, ýmis fríðindi og ferðalög (er góð vinkona einnar þarna og þekki aðra ágætlega) þannig að ég fylgist aðeins með þessu... en stelpur.. mér finnst þið bara rocka og haldið áfram að skemmta ykkur og hafa gaman að þessu, til þess er leikurinn gerður.. Knús... ;*
arna skrifaði 8 apríl 2004, kl. 18:23 Þetta sannar bara það sem ég hef sagt langa lengi. Einar Bárða átti aldrei að fæðast.
Atli skrifaði 8 apríl 2004, kl. 18:28 Vá þetta er eitt það glataðasta sem ég hef séð.. Ég dauðskammaðist mín fyrir þeirra hönd, svona svipuð tilfinning og þegar ég horfði á fyrstu American Idol þættina þar sem enginn gat sungið. Ég held samt að þessar stelpur geti alveg sungið, Einar Bárða er bara ekki sá sem getur hjálpað þeim, þessi maður er bara tónlistar disaster... Og hvað er málið með augun á ljóskunni?? Crazy Eyes bara...
Matthildur skrifaði 8 apríl 2004, kl. 18:34 ömurlegar forljítar tussur !...ætla bara að biðja ykkur um að hætta ! ógeð
elBang skrifaði 8 apríl 2004, kl. 18:54 Hvaða væl er þetta ?!?!? Ekki
það að þetta sé tónlist sem ég fíla en þetta er
fínt. Er Birgitta eitthvað betri söngkona en
þær, nei það held ég ekki.
Óskar skrifaði 8 apríl 2004, kl. 19:32 Er þetta ekki akkúrat það sem
við þurfum. Skítsama um lagið sem verður alltaf
gott, hvort sem þær nauðga því eða einhver
annar. Það er miklu skemmtilegra að heyra þetta
en t.d. í slefandi eurovision faranum. Ef þær
væru ekki hérna þá gætum við ekki böggað þær en
það er einmitt allt of gaman. Einar Bárðar er
síðan auðvitað einyrki en hann kann að búa
(kann kanski ekki en þorir) til peningar þannig
að hann fær mörg prik frá mér (ásamt samúð).
Rapper Stonie Stoned skrifaði 8 apríl 2004, kl. 20:20 Of pródúseraðar raddir, í shitty útgáfu af annars góðu lagi. Myndbandið er brandari. Stelpurnar eru fórnarlömb popkúltúrs æði og Einars Bárða. p.s. hversvegna eru þær allar dressaðar upp sem portkonur frá 1970 ??
zato skrifaði 8 apríl 2004, kl. 21:55 Æj.. Vá hvað er málið með íslenskt fólk.. þo þið sem sitjið hiema hja ykkur og hafið enga heifileika ekki þa gagnrýna hæfileika folkið.. i fyrstalgi.. Alma=ótrulega sæt flott augu eg meina það ef einvher er öðruvisi þa þarf alltaf að dæma hana hvað er malið..!? og hun syngur VELemilía vá hun er svo falleg... eg meina öðruvisi rödd mjög serstök og það gerir það FLOTT eg miena hlustið á noru johns Mjög serstök rödd en nejj samt dæmi þið hana ekki þvi hun er fræg.. þá þarf alltaf öllum öðrum lika finnast það..steinunn fullkomin i alla vegu.. hvað viljji þið bra ekki dæma hana utaf þvi hun hefur ekkern hæfileika...!? klara BEsta stulka sem þu getur upplifað frikuð sæt æðisleg og allveg massiv gella... þið þarna hiema hja ykkur hætti þið að hanga fyrir framna þessa tölvu og hætti þið að gagnrýna þá sem eru með hæfileika...! njotíð lifsins þið eigið bara eitt... og eg meina allit eiga hæfileika verið svo góð og nýtið þá hætti þið að brjota þær niður ... þvi einn góðan veður dag gætuð þið verið i sömu sporum þa hugsi þiið vá einu sinni var eg svona...! en þessar stelpur eiga sitt lif og eru bra að gera það frekar gott...! stelpur ekki hlusta á þessa krakka þið eruð að byrja og það er EKKI hægt að dæma etir eitt lag... stay cool eins og alltaf og krakkar allar hafa einhverja hæfileika ekki vera hrædd við að syna þa... og munið Engin er eins... Arg... sjaumst ;)
Elín skrifaði 8 apríl 2004, kl. 22:41 já æj mer finnst þetta flott hjá ykkur stelpur þið standið ykkur vel..en þið eruð bara á vitlausum stað..;) og eilega vitlausum tíma..svo eruði allar sona barbílegar..og þa er voðalega erfitt að verða frægur fyrir það á íslandi..:S þú verður oftast að hafa sko hæfileika
ása skrifaði 9 apríl 2004, kl. 01:10 já æj mer finnst þetta flott hjá ykkur stelpur þið standið ykkur vel..en þið eruð bara á vitlausum stað..;) og eilega vitlausum tíma..svo eruði allar sona barbílegar..og þa er voðalega erfitt að verða frægur fyrir það á íslandi..:S þú verður oftast að hafa sko hæfileika
ása skrifaði 9 apríl 2004, kl. 01:10 Flott hjá ykkur stelpur, lagið var illa valið en þið stóðuð ykkur vel og mig hlakkar til að fylgjast með ykkur.
Gylfi Markússon skrifaði 9 apríl 2004, kl. 01:30 maður væri til í að þrykkja aðeins í þær sem eru á lausu, allavega Klöru ósk
beggi skrifaði 9 apríl 2004, kl. 03:52 jahááa... þetta var nu gaman!
ég meina þetta eru sætar stelpur og allt það..
geta lika alveg sungið ! en hva er málið með að
vera púsla saman einhverju sona bandi.. ísland
er bara að verða að einhverju mini ameríku...
næst feitustu börnin og samsettar
píkupopphljómsveitir.. hvað er málið.. !
Birna skrifaði 9 apríl 2004, kl. 04:17 hvada rofl er a ykkur kaeru Islendingar! Hafid tid ekkert betra en ad gera en rakka nidur ungar haefileikarikar notabena fallegar stelpur! Roid ykkur adeins a ofundsykinni! Hvernig vaeri frekar ad standa vid bakid a teim og syna sma studning, finna jakvaedu punktana i stadinn fyrir ad einblina a einhver litil smaatridi sem maettu fara betur! Af hverju ekki frekar ad samgledjast og gefa teim sma taekifaeri a ad sanna sig .. hver veit tetta gaetu verid okkar naestu storstjornur ;)
magga skrifaði 9 apríl 2004, kl. 07:09 Djö.. Andskotans níðsegðir eru hérna alltaf hreint. Þið fólk sem skrifið hérna, þið vitið vel að við erum á verri stað heldur en þær. Þær að skemmta sér vel í poppkúlturnum en við hin eyðum öllum tíma okkar í að skoða heimasíður og segja hvað allt sé lélegt og leiðinlegt. Fussumsvei.
Djöfull skrifaði 9 apríl 2004, kl. 11:28 Eg get verid alveg sammala um tad ad tetta eru myndarlegar stelpur og sumar hverjar syngja orugglega vel en tad er ekki ad gagryna stelpurnar personulega tad er bara ad myndbandid er hryllingur og lagid lelegt en svo ma vel vera ad tær komi med eitthvad betra næst...en eins og stadan er i dag ta er tetta lag hormung..en eg hugsa ad tær verdi frekar vinsælar med formulupopp og flottar..eins og einhver sagdi litlu stelpurnar vilja vera eins og unglingsstrakarnir tryllast ur gerddu :)
sylvia skrifaði 9 apríl 2004, kl. 11:31 spice girls voru nu skarri en þetta er djok, þetta eru nu svaðalegar bombur þessar stelpur ... !
jonni skrifaði 9 apríl 2004, kl. 13:40 Ég skil ekki hvaða helvítis afbryðisemi þetta er í ykkur! Týpiskt íslendingar að fara setja út á allt og alla um leið og einhver fær tækifæri til að gera eitthvað spennandi með líf sitt. Mér finnst þetta bara þokkalegt myndband miðað við fyrstu tilraun. Þið standið ykkur vel stelpur. Haldið ykkar striki!!!
Dúskur skrifaði 9 apríl 2004, kl. 17:37 Peningavélin Einar Bárðar strikes again með íslenskri stelpuhljómsveit sem, ótrúlegt en satt, hljómar eins og sugababes og skítamórall í sama pakka fyrsta myndbandið þeirra er komið hér Ég vona að dr.gunni hafi fengið ríkulega borgað fyrir lagið.... Lesið meira hér.
{esc}*easy, sleazy & cheesy,
9 apríl 2004, kl. 17:54 hmmm oki þetta myndband er allavega hörmung, stúlkurnar ekkert af verri taginu... textinn hreint út sagt hljómar eins og systir mín hafi samið hann og hvað er málið með endinn gott fólk... ef þær ætla að detta geriði það þá almennilega ekki eins og í ballettsýningu ...... lokaeinkunn c-
svavar skrifaði 9 apríl 2004, kl. 19:43 Hi my names is Adrien
(Twinkle)....
adrien skrifaði 10 apríl 2004, kl. 19:08 mér finnst þetta bara ótrúlega sætar stelpur sérstaklega alma.. en ég held að það sé ekket nóg?? eða hvað?? mig langar að bíða bara eftir öðru lagi og dæma þetta þá :) en hvað er málið með guttana á myndunum!?
andrea skrifaði 10 apríl 2004, kl. 20:25 Þetta er Tótallí besta lag í heimi.. omg ég fer að gráta þetta er svo flott.. omg!!! ég ætla að læra þetta utanbókar.. omg tótallí geggt. þúst þetta er omg sko wow!!
Ella Gella skrifaði 10 apríl 2004, kl. 22:58 hvað er málið með að fólk er að tala um hvað lagið er asnalegt eins og það hafi verið samið fyrir þær?? Þetta er gamalt lag með unun!! fólk gerir allt til þess að dissa þessar stelpur. Ég hef alltaf fýlað þetta lag og finnst stelpurnar bara gera þetta ágætlega.. á náttla eftir að heyra þetta betur..
Kally skrifaði 11 apríl 2004, kl. 17:33 jæja krakkar mínir er einhver öfund í gangi, að vísu er þetta pínu glatað ég segi það ekki, en af hverju má ekki vera stelpna band alveg eins og það er verið að troða skímó og í svörtum fötum uppá allt og alla.Og svo með augum á henni Ölmu þá eru þau bara fín, stór og flott, etta er fín stelpa og ekki segja að hún og klara syngi illa það er nú meiri vitleysan, shjiiit og svo er snorri kallin bara í videoinu (á myndunum) SNORRI MINN ÞÚ STENDUR ÞIG VEL HEHE ;) ) segi svona ;) jæja hættiði bara þessari öfundsíki
María skrifaði 11 apríl 2004, kl. 18:01 okí það er ekkert að greyð stelpunum .að segja allir að þær séu fínar...en hvernig er búið að gera lagið marrr..myndbandið er skelfilegt en það er ekki þeim að kenna heldur þeim sem gerðu þetta...
muuu skrifaði 12 apríl 2004, kl. 12:51 mér finnst þær passa ágætlega saman en mér finnst þetta frekar gerfilegt myndband og illa gert það verður bara að segjast en svona ok. Bara að næstu myndbönd verði skárri!!
jóga skrifaði 12 apríl 2004, kl. 14:30 Það er gjösamlega ekki verið að fara eftir sönghæfileikum. Frekar l´légt. Og þessi með augun. Vá lokaðu þeim maður fær ofbirtu. Ljótar og leiðinlegar. Trúi ekki að inhver vilji vera með þeim nema kallarnir þeirra. Virkilega lj´+otar. Og ég öfunda þær rkki langar engan veginn að vera ljót og með enga hæfileika.
siggi skrifaði 12 apríl 2004, kl. 23:46 Sko þær eru alveg ágætar söngkonur og gætu bara orðið alveg ágætar en ÞETTA VAR BARA SVO HÖRMULEGT MYNDBAND að þetta hefur bara NIÐURLÆGT ÞÆR ef að þær hefðu nú gert flott myndband og sungið fjörugara og líflegra lag með einhverju undispili sem heyrist þá hefði þetta bara verið flott!!! þær geta það alveg!
wurth skrifaði 13 apríl 2004, kl. 12:10 merkilegt þegar sumir setja sig á háann hest "mér líkaði ekki þessi bíómynd" mér sýnist að fólk yfir höfuð sé ekkert að lítast á þessa hljómsveit hérna það er eðlilegt annaðhvort er eitthvað gott eða ekki punktur
rv skrifaði 13 apríl 2004, kl. 12:41 Þetta er alveg það versta sem ég hef séð og hef ég nú orðið vitni að ýmsu. Og hvað er málið með þessa Ölmu? Eru augun að detta út úr hausnum á henni?
Helgi skrifaði 13 apríl 2004, kl. 18:21 Allt saman flottar stelpur.. en ég fæ klígju af því að hlusta á þetta samt. Íslenskt stelpnaband.. now i've seen it all..
Beggi skrifaði 13 apríl 2004, kl. 19:07 Farið ekki að grenja þó að enginn vilji ykkur í hljómsveit,voruð ábyggilega öll í prufunni hjá Einari!!! hehehehehehe ....Og að enginn hér sem horfði á þetta hafi fattað það að það er greinilega ekki verið að taka þetta of hátíðlega með klaufabárða endinum!!Ekki eins og það séu milljónir á bak við íslenskan tónlistargeira...Svo mikið sem þið vitið ekki elskurnar.tíhí
Unnandi skrifaði 13 apríl 2004, kl. 23:50 Ég gæti ekki verið meira
sammála þér elsku d+ullan mín, Iceland get over
it það geta ekki allir verið frægir en gefum
þessum elskum nú einu sinni séns !
Beta vicsec skrifaði 14 apríl 2004, kl. 01:39 þetta er algert helvítans
ógeð!!!!
Árni skrifaði 14 apríl 2004, kl. 04:27 Það eru flestir hérna sem eru að deyja úr gremju!! Allir að deyja úr neikvæðni. Þessar stelpur fóru allavega í prufu hjá Einari að því að þeim langaði til þess. Þið eruð bara gröm vegna þess að þið hafið ekki tekist að láta YKKAR drauma rætast og þá er auðvitað best að ráðast á þá sem virkilega "go for it"!!
Stebbi stuð skrifaði 14 apríl 2004, kl. 11:15 sko... Þetta er svo hrikalegt
bara.
Anna M skrifaði 14 apríl 2004, kl. 18:17 Það eru svo margir hér á landi sem hafa svo sterkar skoðanir um hvernig hlutirnir eiga að vera og hvernig þá eigi að framkvæma.Svo er þetta skoðanaglaða lið bara að vinna í bónus eða McDonalds.Þetta er ekkert nýr Elvis eða Bítlarnir,það er bara verið að gera eitthvað hressandi sýnist mér.Fyrir ykkur hin,haldið þá bara áfram að telja vörur í Bónus og slökkvið bara á útvarpinu þegar "Nælonið" heyrist...
Sigurgeir skrifaði 14 apríl 2004, kl. 19:15 Mér finst þetta lag persónulega alveg hræðinlegt og nánast allt við það og sérstaklega myndatakan og lagið sjálft er lélegt, ekki að það sé illa sungið. þær eru allar með góðar raddir en mér finst þær ekki passa vel saman.
viktor skrifaði 15 apríl 2004, kl. 13:27 Hahahaha... F.Y.I. Þessar stúlkur syngja ekki vel. Til að syngja vel þarf vott af sjálfsvirðingu og svona dæmi ber ekki vott um mikið af slíku... Húrra fyrir enn einum milljónapakkanum í
eitthvað djöfulsins froðuprójekt...
Svavar Kristinsson skrifaði 15 apríl 2004, kl. 15:01 Okey eg er sammála að það eru ekki allar sem hafa einhverja þvílíka rödd þarna.. en þær hafa allavega einhverja góða rödd heyrist mér .. ef að þær hefðu ekki góða rödd til að syngja myndu þær varla fá að vera í þessari hljómsveit Nylon og taka þátt í þessu "projecti" eins og þú orðar það Svavar.. hmm eða hvað? mér finnst hún Klara reyndar vera með bestu röddina af þeim enda hef ég heyrt Klöru syngja í verslóleikritum og fleira, hún hefur mjög góða rödd og þu getur ekki sagt að hún (þær) syngja ekki vel því að annars hefðu þær aldrei fengið þetta "project" !! Okey.. þessi texti á þessu lagi finnst mér ekkert svaka skemmtilegur og höfðar ekkert rosalega til mín, en þetta er þó einhver byrjun hjá þeim og mörg af ykkur eru bara að drulla yfir þær... eg meina okey Svavar og þið hin.. þessar stelpur eru nálægt því að láta "draum" sinn rætast um að vera stjörnur eða whatever og komast kannski e-ð lengra í tónlistarbransanum .. afhverju reyniði ekki frekar að samgleðjast þeim staðin fyrir að drulla svona yfir þær. þótt þetta séu ykkar skoðanir og allt það .. auðvitað má tjá sig, en reynið þið að setja ykkur í þeirra spor ef að þið vilduð láta ykkar draum rætast og fólk myndi flest vera allt, allt, alltof dómhart við ykkur og geta ekki einu sinni samgleðst! common .. Íslendingar í dag eru alltof dómharðir.. afhverju takiði ykkur ekki tíma til að lýta í eigin barm staðin fyrir að dæma svona mikið í kringum ykkur!!
Birna R skrifaði 15 apríl 2004, kl. 22:16 Þetta er nú voða sorglegt, þetta stúlknaband. Hlægilegt. Einar Bárða er ekki löndum sínum til sóma, ætti að snúa sér að einhverju öðru en tónlistinni, kannski garðrækt...
TrampLin skrifaði 16 apríl 2004, kl. 14:25 Voðalega eru allir eitthvað pirraðir. Þetta lýsir okkur Íslendingum best skítum allt út strax gefum eingu tækifæri á að sanna sig. Þetta er flott hjá ykkur stelpur og haldið áfram.
Excobar skrifaði 18 apríl 2004, kl. 18:10 mega bara þeir sem hafa eitthvað gott að segja tjá sig um þetta ?
ólöf skrifaði 18 apríl 2004, kl. 20:51 Gríðarlega myndarlegar
hnátur. Good job.
Dagur skrifaði 19 apríl 2004, kl. 12:53 já.....dulítið asnaleg hugmynd og svona frekar úrelt, hefði kannski gengið fyrir svona,tja,7 árum?! En þó verð ég að viðurkenna að mér finnst ein þeirra hafa fína söngrödd,hún er dökkhærð....erhm...=S! En eigum við ekki bara ða gefa þeim amá tækifæri? :Það er ekki eins og e-r s+e að neyða ykkur til að hlusta/horfa á þær?! ....oh.og þegar þær detta...eitt orð=> MISHEPPNAÐ!!!
sokkurinn..aftur! skrifaði 19 apríl 2004, kl. 22:15 sko já, mér finnst þetta vera
frekar mikið sorglegt skoh..! ég meina..alveg
fáránlegt myndband..og þvílíkt asnalegt nafn á
hljómsveit !.. NYLON !:S..en já ég vona bara
að þetta verði ekki sýnt einhversstaðar
erlenedis (ekki einsog ég búist eikkað við
því..!haha) svo að ég þurfi ekki að skammast
mín fyrir þjóðina ! þetta er bara algjört RUGL
! skil bara ekki hvernig er hægt að láta fólk
sjá þetta..! en jæja nú er ég búin að tjá mig
nóg :)
ég skrifaði 24 apríl 2004, kl. 00:59 hihihi. kókauglýsing. djöfuls rugl. þetta er bara næstum tíu ára gamall slagari sem eldist greinilega ekki eins vel og maður hefði haldið. annars heyrði ég að þær hefðu verið stórkostlegar á ungfrú reykjavík og margir búnir að éta orðin sín sem féllu eftir frumsýningu þessa myndbands. sem er gott. sem er mjög gott.
beta skrifaði 25 apríl 2004, kl. 23:54 mér finst þetta flott.. gripandi lag.. og flott myndband.. það er ekki eins og þær séu búnar að vera í branzanum síðustu tuttugu ár.. ég held að eina ástæðan fyrir því að þær yrðu ekki neitt svakalega frægar væri sú að það er alltof mikið að fólki sem getur ekki látið það vera að rakka aðra niður til að betrum bæta sjálfa sig.. hvort sem þau viðurkenna það eða ekki.... ég er að því akkurat núna.. með að setja út á þá sem eru að rakka aðra niður með þessum orðum ég biðst afsökunar.. en ég held að íslendingar megi alveg við því að vera jákvæðari og stuðningsmeiri.. sérstaklega þar sem þetta er gert fyrir þá sem hafa gaman af tónlist.. mér finst þetta bara frábært hjá stelpunum og gott hjá einari bárða.. það sínir í raun bara misþroska að drulla stanslaust yfir aðra.. en auðvitað er þetta bara min skoðunn :)
laufey skrifaði 28 apríl 2004, kl. 19:29 vá hvað þetta er sorglegt!!! Þessi feiti göldur hann Einar Bárða er enn og aftur að skíta í degið! Og hvað er með þessar stelpur þótt þær séu ágætar útlitislega séð þá er greinilega ekkert á milli eyrnana á þeim! Enda kemur ekki á óvart að allavega tvær af þeim komu úr aðaæ plebba og snobb skólanum Versló! Allavega veit að ég myndi ekki gera svona lagaðþótt við værum að tala um nokkrar millur!!! ótrúlega heimskar....
Bjarni skrifaði 7 maí 2004, kl. 18:44 þetta er bara tær snild.
kula skrifaði 21 maí 2004, kl. 23:24 þær eru geggjað flottar og eg vildi að eg gæti sagt það sama um lagið...
eg skrifaði 31 maí 2004, kl. 00:17 omg!! Alma er ógisslega ljót!!:O af hverju sætta þær sig bara ekki við þetta.: þær komust ekki áfram í idol so back off!!
baraeg skrifaði 2 júní 2004, kl. 20:16 Mér finnst alveg hrikalegt að fólki finnist þetta allt í lagi. Alvöru tónlist er að tapa gegn "Made UP"
tónlist sem einhverjir kallar útí bæ búa
til.. Sorry en gefið mér tónlist þar sem fólk
kemur saman í þeim tilgangi að búa til tónlist
Ég veit samt að Alma getur vel sungið, vann
söngvakeppnir o.s.frv. en eins og ég segi Sorglegt! Kv. Elli
Elvar skrifaði 6 júní 2004, kl. 20:40 ok...ekki góðir tónlistamenn
en gjiiiiiðveikar gellur...sjiiid!
villson skrifaði 7 júní 2004, kl. 15:29 Það eru margir hérna sem vita
ekki einu sinni hvað þeir eru að tala um!!!
Þetta er fyrsta lagið þeirra og þetta er
kannski ekki besta lag í heimi en þær geta
allar sungið mjög vel og þær eru sætar. Fyrir
utan það að þær sömdu ekki lagið sjálfar í
þetta skiptið. Þær eiga eftir að gefa út fullt
af lögum, gefiði þessu tíma!
Anna skrifaði 12 júní 2004, kl. 11:42 Kynnið ykkur alvöru tónlist, tónlist fyrir eiturharða Íslendinga. Verið stoltir af þjóðerni ykkar.
Þór skrifaði 1 júlí 2004, kl. 19:06 ohh.. mér finnst þetta svo gott lag.. gaman að syngja etta á fylleríum marrh :D Etta er fkn viðbjóður! essi þarna með augun gerir mig alleg brjálaða :P
Mæja skrifaði 4 júlí 2004, kl. 14:22 Merkilegt hvað fólk getur
verið barnalegt og öfundsjúkt!!!
Rúnar skrifaði 17 júlí 2004, kl. 17:31 Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another. Lesið meira hér.
Personal Injury Lawyer,
4 febrúar 2005, kl. 23:12 Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another. Lesið meira hér.
Personal Injury Lawyer,
4 febrúar 2005, kl. 23:41 Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another. Lesið meira hér.
Personal Injury Lawyer,
5 febrúar 2005, kl. 03:00
Bæta við ummælum (URL autolinkuð, ekkert HTML)
© Geiri3d |
|
||