Geiri3d: Sci-Fi nostalgía
 
 
Nýleg skrif

30 mars 2004

Sci-Fi nostalgía

V-TV.jpg

Ég er búinn að vera eitthvað voðalega latur að skrifa síðustu daga, en ætla að bæta það í dag. Ég er nefnilega nýbúinn að redda mér V og V: The Final Battle, en þetta eru gamlir sci-fi þættir sem að eru ótrúlega skemmtilegir, þeir eru eitthvað svo rosalega 80´s. Tæknibrellurnar algjör snilld, og allur klæðnaður og hárgreiðslur gera þættina ódauðlega að mínu mati.

Ég er nýbyrjaður að horfa á þetta, en báðar seríurnar eru samanlagt 24 tímar að lengd, svo að ég verð einhvern tíma að horfa á þetta allt saman aftur. Söguþráðurinn er eitthvað á þessa leið:

Geimverur koma til jarðarinnar og þykjast þurfa á okkar hjálp(mannkynsins) að halda, en eru í raun og veru komnar til að stela öllum auðlindum jarðar og hneppa mannkynið í þrældóm.

Ég man að ég sá þessa þætti þegar ég var yngri og mér þóttu þeir algjör snilld, og það litla sem ég er búinn að horfa á af þessu síðustu daga er ennþá snilld, en núna eru það hlutir eins og gamaldags tæknibrellur, hárgreiðslur og klæðnaður sem skemmtir mér töluvert meira en það gerði á sínum tíma. Og svo auðvitað að þetta er skemmtileg saga. En til gamans má geta að margt í hegðun og framkomu geimveranna minnir mann óneitanlega á ríkisstjórn George Bush og félaga ;)

Mér til mikillar ánægju sá ég að það stendur til hjá NBC að gera 3 tíma kvikmynd, sem gerist 20 árum eftir að seinni serían endar. Og hlakka ég mikið til að sjá hana, en söguþráðurinn fyrir þá mynd er á þessa leið:

20 árum eftir lok síðustu þáttaraðar eru geimverurnar komnar með algjör yfirráð yfir jörðinni, og stór hluti mannkynsins er kominn á band með geimverunum, nú stefna geimverurnar á enn stærri og hættulegri landvinninga. Og mótspyrnan virðist vera að tapa stríðinu þegar að þeim birtist allt í einu sterkur og óvæntur bandamaður.

Samkvæmt fréttinni sem ég las, þá er verið að semja við flesta af gömlu leikurunum um að leika í nýju myndinni, ég vona bara að eins vel takist og tókst með nýju þættina af Battlestar Galactica.

Tjáðu þig
Down pila.JPG



Geiri3D skrifaði 30.03.04 10:13 | (Tracback)
12 Ummæli

Já ég fékk seríuna lánaða hjá Jósa fyrir jól og skemmti mér konunglega yfir henni.

Ég veit bara að þarna sá ég first Michael Ironside mikill og góður leikar, og hef ég leitast eftir að finna allar myndir sem hann hefur gert !

zato skrifaði 30 mars 2004, kl. 13:55

Þessir þættir voru alger snilld. Ég man mjög vel eftir þeim og hafði gaman af. Að fá 3 tíma kvikmynd er tær snilld. Nú er bara að verða sér úti um þættina og byrja að glápa.

Keli skrifaði 30 mars 2004, kl. 14:10

eru kvikindin komin ú á DVD?

Ingi skrifaði 30 mars 2004, kl. 15:24

Frábært, Þessir þættir voru algjört brill. Ég tryggði mér um daginn fyrstu seríuna af Tripods sem sýndir voru á RUV hér áður fyrr. Nostalgíugeðveiki

paunkholm skrifaði 30 mars 2004, kl. 15:35

Jamm Ingi, komið á DVD.

Geiri3D skrifaði 30 mars 2004, kl. 16:37

Ég er reyndar bara búin að sjá V og tók það í gegn aftur fyrir um ári síðan og var það algert afbragð. ÞArf að kíkja á seinni seríuna og sjá hana, sá hana aldrei á sinum tíma. En djöfull var gaman að þessu.

Í sambandi við Battelstar Galactice þá er búið að ákveða að gera 13 fyrir Sci-Fi stöðina en ekki búið að planleggja 100% hvenar þeir vera sýndir.

Tripods var nú mun betri í minningunni, sá það á DVD líka dyrir nokkru

Kirk skrifaði 31 mars 2004, kl. 01:32

Tek undir með Kirk, Tripods voru mun betri í minningunni, mikið rólegri en mig minnti :P

Siggi G. skrifaði 2 apríl 2004, kl. 18:25

var gaurinn á myndini á mars

dresi skrifaði 16 apríl 2004, kl. 15:25

Nipps, hann er að grafa upp fornleifar hérna á jörðinni. Þetta er í upphafinu á þáttunum þegar geimskipin eru fyrst að birtast.

Geiri3D skrifaði 16 apríl 2004, kl. 15:32


Personal injury attorneys and lawyers typically represent clients (plaintiffs) who have been injured either financially or physically due to the fault of another.

Lesið meira hér.

Personal Injury Lawyer, 5 febrúar 2005, kl. 00:46


Be sure to buy Cialis online! We have the solution against ED. Try our Cialis offer now and you'll be satisfied!

Lesið meira hér.

Cialis, 11 mars 2005, kl. 22:48


download psp movies

Lesið meira hér.

sony psp movies, 25 janúar 2006, kl. 23:41

Bæta við ummælum (URL autolinkuð, ekkert HTML)









Muna eftir mér?